
Þetta byrjaði allt með Úlfi en varð að samstarfi tveggja mæðra með sameiginlega sýn.
Við stofnuðum Úlfatíma til að hjálpa fjölskyldum að einfalda daginn og gefa börnum hollan og næringarríkan mat.
Við trúum því að góð næring og aðeins meiri einfaldleiki í dagsins amstri geti breytt öllu fyrir litla fjölskyldu. Ef við náum að létta undir, þá erum við að gera eitthvað rétt.
Takk fyrir að leyfa okkur að vera hluti af ykkar Úlfatíma.
Þóra & Dóra

Þetta byrjaði í eldhúsinu heima...
Þegar sonur Þóru, Úlfur Orri, var nokkurra mánaða, upplifði hún hvað það var yfirþyrmandi að sjá ein um næringu barnsins hennar. Maðurinn hennar byrjaði því að elda stóra skammta af hollum barnamat, pakka þeim í poka í litlum skömmtum og setja í frystinn. Með þessu gat Þóra leikið og tengst Úlfi í ró og næði og hitað svo matinn hans á örfáum mínútum þegar hann varð svangur.
Kvöld eitt, þegar Úlfur borðaði kjötrétt með baunum og grænmeti, leit Þóra á manninn sinn og sagði: „Allir foreldrar ættu að hafa svona tilbúinn, hollan mat í frystinum.“ Og þar kviknaði hugmyndin ...
Þegar Þóra hitti Dóru
Stuttu síðar kynntist Þóra Dóru Eldjárn, matvælafræðinema með djúpa þekkingu á gæðum og næringu. Þær náðu strax tengingu sem mæður og frumkvöðlar og ákváðu að vinna saman að þessari hugmynd. Þóra sótti um styrk hjá Rannís, þær hófu rannsóknarvinnu og Dóra leiddi faglega greiningu á leyfum, reglum og næringarkröfum.
Þær höfðu ólíka styrkleika, en sömu sýn - að bjóða foreldrum mat sem einfaldar daginn og nærir börnin vel.
Frá hugmynd að vöru
Eftir hlé vegna frekari barneigna og heimsfaraldurs lét hugmyndin Þóru ekki vera. Síðla árs 2024 fór hún svo á fund með Krónunni og kynnti hana. Viðbrögðin voru frábær og í kjölfarið skrifuðu Þóra og Dóra, þá orðinn matvælafræðingur, undir samning um fyrstu þrjá rétti Úlfatíma.
Síðan þá hafa þær unnið sleitulaust að því að koma vörunum í hillurnar og nú, haustið 2025, eru þær komnar með sína fyrstu þrjá rétti í 14 verslanir Krónunnar!